Fotbolti.net
01.02.21 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Aston Villa sendir Guilbert til Strasbourg (Staðfest)

Aston Villa sendir Guilbert til Strasbourg (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur ákveðið að senda franska varnarmanninn Frederic Guilbert aftur í franska boltann. Þar mun hann leika fyrir Strasbourg út tímabilið.
Guilbert er 26 ára gamall hægri bakvörður sem getur einnig leikið í hjarta varnarinnar.

Hann lék 25 leiki í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hefur ekki komið við sögu það sem af er tímabils.

Guilbert hefur spilað yfir 100 leiki í efstu deild franska boltans með Bordeaux og Caen og kemur því með reynslu inn í vörnina hjá Strasbourg.

Strasbourg er í neðri hluta frönsku deildarinnar með 24 stig eftir 22 umferðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.