01.02.21 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Atalanta fær Kovalenko frá Shakhtar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atalanta heldur áfram að sanka að sér miðjumönnum úr gömlu Sóvétríkjunum og er Viktor Kovalenko búinn að skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið.
Kovalenko er 24 ára miðjumaður sem á 30 leiki að baki fyrir úkraínska landsliðið og 200 fyrir Shakhtar Donetsk.
Hann hefur gert 32 mörk fyrir Shakhtar en aldrei tekist að skora fyrir landsliðið. Hann er mikilvægur hlekkur í báðum liðum.
Kovalenko getur spjallað við landsliðsfélaga sinn Ruslan Malinovskyi og rússneska sóknartengiliðinn Aleksei Miranchuk.
Atalanta er sagt borga aðeins 650 þúsund evrur fyrir Kovalenko sem hefði orðið samningslaus í sumar.