01.02.21 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Baba Rahman spilar með Sverri Inga út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sverrir Ingi Ingason er kominn með nýjan liðsfélaga í vörninni hjá PAOK í gríska boltanum, Abdul Rahman Baba sem er betur þekktur sem Baba Rahman.
Rahman er 26 ára vinstri bakvörður sem getur einnig leikið á kantinum. Hann er frægur fyrir að hafa verið keyptur til Chelsea fyrir rúmlega 20 milljónir punda á sínum tíma.
Hann var aðeins 21 árs og stóðst ekki væntingarnar hjá Chelsea sem hefur lánað hann til Schalke, Reims og Mallorca undanfarin ár.
Nú fer Rahman til Grikklands í fyrsta sinn og segist vera spenntur fyrir framhaldinu með PAOK, sem er í harðri baráttu um annað sæti deildarinnar. Olympiakos er svo gott sem búið að tryggja sér titilinn.
Rahman á 28 landsleiki að baki fyrir Gana og hefur í heildina leikið 23 keppnisleiki fyrir aðallið Chelsea. Hann rennur út á samningi í júní á næsta ári.

Very happy to have joined @PAOK_FC and looking forward to helping the team achieve its aim for the season.
— baba abdul-rahman (@babarahmangh) January 31, 2021
Greece has always been a historical country and I'm desperate to learn the language and sink myself in the culture already.
⚽️⚽️👊👊🔥🔥🔥 pic.twitter.com/SlBrFkoTWU