Fotbolti.net
01.02.21 - 20:14
Ívan Guðjón Baldursson

Ben Davies til Liverpool (Staðfest)

Ben Davies til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Liverpool eru búnir að tryggja sér Ben Davies frá Preston North End.
Davies er 25 ára miðvörður sem á að fylla í skarðið í hjarta varnarinnar í fjarveru lykilmanna á borð við Virgil van Dijk og Joe Gomez sem eru að glíma við meiðsli.

Davies mun berjast við Nathaniel Phillips um byrjunarliðssæti í hjarta varnarinnar og er líklegt að tyrkneski miðvörðurinn Ozan Kabak bætist við þá byrjunarliðsbaráttu von bráðar.

Davies er uppalinn hjá Preston og hefur spilað 144 leiki fyrir félagið.

Kaupverð er óuppgefið en talið vera á bilinu 500 þúsund pund til tvær milljónir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.