Fotbolti.net
01.02.21 - 15:53
Elvar Geir Magnússon

Birgir framlengir við KA - Lánaður aftur til Leiknis (Staðfest)

Birgir Baldvinsson í leik með Leikni.

Birgir Baldvinsson í leik með Leikni.

Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

Bakvörðurinn Birgir Baldvinsson skrifaði á dögunum undir nýjan samning við KA út árið 2023. Á sama tíma skrifaði hann svo undir lánssamning hjá Leikni Reykjavík en hann lék einnig á láni þar síðari hluta síðasta tímabils.
„Birgir sem er nýorðinn tvítugur er efnilegur varnarmaður og er uppalinn hjá KA en Leiknir tryggði sér sæti í Pepsi Max deildinni á síðasta tímabili og því fær Birgir okkar gott tækifæri í efstu deild með Leiknismönnum á komandi sumri." segir á heimasíðu KA.

„Undanfarin ár hefur Birgir glímt við meiðsli og hefur af þeim sökum spilað minna með meistaraflokki KA en hefði annars verið en hann hefur sýnt mikinn karakter í endurhæfingu og verður svo sannarlega spennandi að fylgjast með honum á komandi árum."

Birgir var með Leikni á láni í fyrra og lék þá fimm leiki í Lengjudeildinni en Leiknir komst upp í Pepsi Max-deildina.

„Birgir, sem varð tvítugur á dögunum. lék í leiknum gegn Val í dag og er það ánægjuefni að hafa hann áfram í okkar liði!" segir á heimasíðu Leiknis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.