01.02.21 - 17:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Björn Bergmann til Molde (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er genginn aftur í raðir norska úrvalsdeildarfélagsins Molde.
Hann kemur til félagsins frá Lilleström og skrifar undir samning til næstu tveggja ára.
Björn Bergmann gekk til liðs við sitt gamla félag Lilleström síðastliðið sumar og hjálpaði til við að koma liðinu aftur upp í norsku úrvalsdeildina. Hinn 29 ára gamli Björn er hins vegar kominn aftur núna til Molde þar sem hann spilaði við góðan orðstír á árunum 2014-2017.
„Ég fékk tiboð sem ég gat ekki sagt nei við. Félögin eru að ná samkomulagi um skiptin," sagði Björn Bergmann við Romeriks Blad á dögunum.
Björn Bergmann á að baki 17 A-landsleiki fyrir Ísland og hefur hann í þeim skorað eitt mark.