Fotbolti.net
01.02.21 - 23:01
Ívan Guðjón Baldursson

Celtic lánar Ntcham til Marseille (Staðfest)

Celtic lánar Ntcham til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celtic er búið að staðfesta að miðjumaðurinn Olivier Ntcham hefur verið lánaður til Marseille í frönsku deildinni.
Ntcham er 24 ára gamall og hefur spilað 137 leiki fyrir Celtic en hann er uppalinn hjá Manchester City og spilaði sinn fyrsta leik sem atvinnumaður fyrir Genoa á Ítalíu.

Hann á yfir 50 leiki að baki fyrir gífurlega öflug yngri landslið Frakka og verður áhugavert að sjá hvernig honum tekst að fóta sig í frumraun sinni í heimalandinu.

Ntcham getur bæði leikið framarlega og aftarlega á miðjunni og hefur skorað 23 mörk fyrir Celtic og sjö fyrir yngri landsliðin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.