01.02.21 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Eva María Smáradóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: Afturelding

Mynd: Afturelding

Afturelding var að tryggja sér þjónustu Evu Maríu Smáradóttur sem kemur úr röðum Breiðabliks.
Eva María er fædd 2003 og uppalin hjá Breiðabliki. Hún á ekki keppnisleiki að baki fyrir meistaraflokk Blika en lék fimm leiki fyrir Augnablik í fyrra.
„Eva María er ungur og spennandi leikmaður, það mun því verða áhugavert að fylgjast með henni á næstu árum og væntum við mikils af henni," segir í færslu á Facebook síðu Aftureldingar.
„Velkomin í Mosfellsbæinn Eva María Smáradóttir!"
Afturelding endaði fjórum stigum fyrir ofan Augnablik í Lengjudeild kvenna í fyrra, með 28 stig úr 17 leikjum.