Fotbolti.net
01.02.21 - 18:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jakob Franz til Venezia (Staðfest)

Jakob í unglingalandsleik.

Jakob í unglingalandsleik.

Canon

Mynd: Hulda Margrét

Venezia, sem leikur í B-deild á Ítalíu, var að semja við þriðja íslenska leikmann sinn.
Jakob Franz Pálsson er kominn til félagsins frá Þór á Akureyri.

Jakob kemur til Venezia á láni og á ítalska félagið svo möguleika á að kaupa hann að láninu loknu.

Jakob er bakvörður sem varð 18 ára í síðasta mánuði. Hann spilaði 14 leiki í deild og bikar með Þórsurum á síðustu leiktíð. Jakob á að baki leiki með U15, U16 og U17 landsliðum Íslands.

Fyrir hjá Venezia eru Bjarki Steinn Bjarkason og Óttar Magnús Karlsson. Liðið er sem stendur í 12. sæti B-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.