01.02.21 - 23:11
Ívan Guðjón Baldursson
Joe Willock til Newcastle (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Enski miðjumaðurinn Joe Willock mun leika fyrir Newcastle út tímabilið eftir að hafa spilað sjö úrvalsdeildarleiki með Arsenal á fyrri hlutanum.
Willock er 22 ára gamall og eykur breiddina á miðjunni hjá Newcastle. Þar má finna miðjumenn á borð við Sean Longstaff, Jeff Hendrick og Jonjo Shelvey.
Newcastle er í neðri hluta úrvalsdeildarinnar með 22 stig eftir 21 umferð, átta stigum frá fallsvæðinu.
Willock á 78 leiki að baki fyrir Arsenal og hefur aldrei verið lánaður frá félaginu áður.
Newcastle er í neðri hluta úrvalsdeildarinnar með 22 stig eftir 21 umferð, átta stigum frá fallsvæðinu.
Willock á 78 leiki að baki fyrir Arsenal og hefur aldrei verið lánaður frá félaginu áður.
⚫️ 𝐃𝐎𝐍𝐄 𝐃𝐄𝐀𝐋 ⚪️#NUFC are delighted to announce the signing of Joe Willock on loan from Arsenal until the end of the season.
— Newcastle United FC (@NUFC) February 1, 2021
Welcome, @Joewillock!
