01.02.21 - 15:58
Ívan Guðjón Baldursson
Jonas Lössl frá Everton til Midtjylland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Danski markvörðurinn Jonas Lössl var orðinn leiður á bekkjarsetu hjá Everton og er genginn aftur í raðir danska stórliðsins FC Midtjylland, þar sem hann mun spila með íslenska landsliðsmanninum Mikael Neville Anderson.
Lössl er nýorðinn 32 ára gamall og á aðeins einn A-landsleik að baki fyrir danska landsliðið, enda hefur hann lengi verið í skugganum á Kasper Schmeichel.
Lössl hóf ferilinn hjá Midtjylland og var svo aðalmarkvörður hjá Guingamp, Mainz og Huddersfield áður en hann gekk í raðir Everton í júlí 2019.
Hann fékk ekki tækifæri hjá Everton og ákvað því að fara aftur til uppeldisfélagsins sem hefur verið að gera frábæra hluti undanfarin ár.

🔵 | @JonasLoessl has left #EFC to return to @fcmidtjylland, the Danish Superliga club where he began his career.
— Everton (@Everton) February 1, 2021