Fotbolti.net
01.02.21 - 11:50
Magnús Már Einarsson

Jonathan Hendrickx í KA (Staðfest)

Jonathan Hendrickx

Jonathan Hendrickx

Canon

Mynd: ka

KA hefur fengið belgíska bakvörðinn Jonathan Hendrickx í sínar raðir frá Lommel í Belgíu.

Hinn 27 ára gamli Jonathan hefur verið orðaður við nokkur félög á Íslandi í vetur og KA hefur nú unnið kapphlaupið um hann.
Jonathan þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa spilað 98 leiki á Íslandi með FH og Breiðablik og skorað í þeim leikjum 3 mörk.

„Jonathan mun verða mikill styrkur fyrir KA liðið sem ætlar sér stóra hluti í sumar undir stjórn Arnars Grétarssonar," segir á heimasíðu KA.

„Jonathan er væntanlegur til landsins í vikunni ásamt félaga sínum Sebastiaan Brebels sem samdi við KA á dögunum. Það verður gaman að sjá þennan öfluga leikmann í KA-búningnum á komandi tímabili og bjóðum við hann hjartanlega velkominn norður."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.