Fotbolti.net
01.02.21 - 21:44
Ívan Guðjón Baldursson

Jonjoe Kenny til Celtic út tímabilið (Staðfest)

Jonjoe Kenny til Celtic út tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celtic er búið að tryggja sér bakvörðinn efnilega Jonjoe Kenny að láni frá Everton út tímabilið.
Kenny er 23 ára gamall og er uppalinn hjá Everton. Hann spilaði 56 leiki fyrir yngri landslið Englands og gerði góða hluti að láni hjá Schalke á síðustu leiktíð.

Kenny hefur spilað 48 leiki fyrir Everton en á ekki möguleika á að hirða byrjunarliðssætið af hinum öfluga Seamus Coleman.

Celtic er svo gott sem búið að missa af Skotlandsmeistaratitlinum í fyrsta sinn í áratug. Rangers trónir á toppi skosku deildarinnar og er aðeins nokkrum stigum frá því að tryggja sér titilinn. Steven Gerrard er við stjórnvölinn þar og hefur fengið mikið lof fyrir frábært gengi liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.