Fotbolti.net
01.02.21 - 23:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Josh Maja til Fulham (Staðfest)

Josh Maja. Hann raðaði inn mörkunum með Sunderland í annarri þáttarröðinni af Sunderland Til' I Die.

Josh Maja. Hann raðaði inn mörkunum með Sunderland í annarri þáttarröðinni af Sunderland Til' I Die.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur klófest sóknarmanninn Josh Maja á lánssamningi frá Bordeaux í Frakklandi.
Hinn 22 ára gamli Maja klárar tímabilið með Fulham og getur Lundúnafélagið svo keypt hann næsta sumar. Talið er að Fulham hafi samið við Bordeaux um 9 milljón punda verðmiða.

Maja sló í gegn með Sunderland í ensku C-deildinni tímabilið 2018/2019 en Bordeaux keypti hann í janúar 2019.

Maja vakti athygli í Netflix þáttaröðinni "Sunderland 'Til I Die". Maja raðaði inn mörkunum innan vallar en utan vallar sagðist hann alltaf ætla að skrifa undir nýjan samning sem hann á endanum gerði svo ekki. Hann fékk ekki ásættanlegt tilboð frá Sunderland og ákvað að fara.

Núna fær hann tækifæri til að láta ljós sitt skína í ensku úrvalsdeildinni með Fulham sem er að berjast fyrir sæti sínu í deildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.