Fotbolti.net
01.02.21 - 23:22
Ívan Guðjón Baldursson

Kamara farinn til Dijon (Staðfest)

Kamara farinn til Dijon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham er búið að staðfesta brottför Aboubakar Kamara frá félaginu. Sóknarmaðurinn mun leika fyrir Dijon, fyrrum félag Rúnars Alex Rúnarssonar, út tímabilið.
Kamara er 25 ára gamall og þekktur fyrir mikinn hraða. Hann gerði aðeins 17 mörk í 89 leikjum hjá Fulham og verður samningslaus í sumar.

Kamara líður best sem fremsta sóknarmanni en getur einnig leikið á báðum köntunum.

Hann var lánaður til Yeni Malatyaspor í Tyrklandi en skoraði aðeins einu sinni í þrettán leikjum þar. Hans besti árangur kom með Amiens í frönsku B-deildinni þegar hann skoraði 10 mörk í 29 leikjum.

Kamara er fenginn til að lífga uppá sóknarleik Dijon sem er í fallsæti með 15 stig eftir 22 umferðir. Liðið er aðeins búið að skora 15 mörk það sem af er tímabils.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.