01.02.21 - 19:12
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool fær ungan markmann frá Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool var að krækja í ungan markvörð frá Celtic, hinn 19 ára gamla Liam Hughes.
Hughes þykir efnilegur markvörður og er partur af U21 landsliði Norður-Íra þrátt fyrir ungan aldur.
Hann hefur ekki spilað keppnisleik fyrir Celtic enda er hann fæddur 2001.
Kaupverð er ekki uppgefið en hann mun leika með Liverpool í varaliðadeildinni í vor.
Liverpool hefur lent í markmannsvandræðum undanfarin misseri þegar Alisson Becker verður fyrir meiðslum. Hughes mun reyna að vinna sér inn sæti sem varamarkvörður með góðum frammistöðum með varaliðinu.