Fotbolti.net
01.02.21 - 22:51
Ívan Guðjón Baldursson

Maitland-Niles til West Brom (Staðfest)

Maitland-Niles til West Brom (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion er búið að tryggja sér bakvörðinn fjölhæfa Ainsley Maitland-Niles á lánssamningi frá Arsenal sem gildir út tímabilið.
Maitland-Niles er 23 ára gamall og hefur spilað 121 leik fyrir Arsenal í hinum ýmsu stöðum á vellinum.

Hann er fenginn til að hjálpa nýliðum West Brom í fallbaráttunni en Sam Allardyce staðfesti fyrir skömmu að félagið hafði tryggt sér fjóra leikmenn á gluggadegi.

Maitland-Niles lék 20 úrvalsdeildarleiki fyrir Arsenal á síðustu leiktíð og er búinn að spila 11 á þessu tímabili.

Hann vill meiri spiltíma til að vinna sér inn sæti í enska landsliðshópnum eftir að hafa spilað fimm leiki undir stjórn Gareth Southgate í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.