01.02.21 - 16:06
Ívan Guðjón Baldursson
Moises Caicedo til Brighton (Staðfest)

Potter og hans teymi hafa miklar mætur á hinum efnilega Caicedo. Brighton er talið borga um 5 milljónir punda fyrir ungstirnið, auk árangurstengdra aukagreiðslna og prósentuhlutfalli af næstu sölu.

Mynd: Getty Images

Brighton er búið að ganga frá kaupum á Moises Caicedo, 19 ára miðjumanni frá Ekvador.
Caicedo er búinn að skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning við úrvalsdeildarfélagið en hann kemur frá Independiente del Valle sem leikur í efstu deild.
Caicedo þykir gríðarlega mikið efni og hefur spilað fjóra A-landsleiki fyrir Ekvador.
„Það er ekki leyndarmál að við höfum verið að vinna í því að fá Moises til félagsins. Allir innan félagsins eru ánægðir að skiptin séu loksins farin í gegn," sagði Graham Potter, knattspyrnustjóri Brighton.
„Hann mun þurfa góðan aðlögunartíma og við höfum fulla trú á að hann geti orðið frábær úrvalsdeildarleikmaður. Hann hefur verið að gera frábæra hluti í Ekvador en það er mikilvægt að honum sé gefinn tími til að aðlagast nýjum heimi."

✍️ Albion have completed the signing of Moises Caicedo on a contract until June 2025 from Ecuadorian top-flight side Independiente del Valle!
— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) February 1, 2021
A̷n̷n̷o̷u̷n̷c̷e̷ ̷C̷a̷i̷c̷e̷d̷o̷
𝗖𝗮𝗶𝗰𝗲𝗱𝗼 𝗮𝗻𝗻𝗼𝘂𝗻𝗰𝗲𝗱 😁
🤝 @firsttouchgames#BHAFC 🔵⚪