01.02.21 - 22:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ozan Kabak til Liverpool (Staðfest)

Nýjasti leikmaður Liverpool.

Mynd: Getty Images

Nýjasti leikmaður Liverpool.

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur samið við miðvörðinn Ozan Kabak um að leika með liðinu út leiktíðina á láni frá þýska félaginu Schalke.
Hinn efnilegi Kabak er fenginn til að leysa vandamál í varnarlínu Liverpool sem skapaðist vegna fjölda meiðsla.
Kabak kemur á lánssamningi með kaupmöguleika. Liverpool borgar eina milljón punda fyrir samninginn og getur keypt ungstirnið fyrir 18 milljónir punda til viðbótar.
Kabak er tvítugur að aldri og hefur spilað með Galatasaray, Stuttgart og Schalke á sínum ferli.
Hann er annar miðvörðurinn sem Liverpool fær til sín í kvöld. Fyrr í kvöld tilkynnti félagið um kaup á Ben Davies frá Preston.
Sjá einnig:
Kabak fær meðmæli frá vini Klopp - „Á að slá umboðsmanninn til riddara"