Fotbolti.net
01.02.21 - 18:04
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Parma krækir í Zirkzee (Staðfest) - Pellè á leiðinni

Hinn efnilegi Zirkzee hefur sýnt fína spretti með FC Bayern.

Hinn efnilegi Zirkzee hefur sýnt fína spretti með FC Bayern.

Canon

Mynd: Getty Images

Parma ætlar sér ekki að falla úr Serie A en liðið er í fallsæti með 13 stig eftir 20 umferðir.
Liðið er að styrkja sig með tveimur öflugum leikmönnum í dag. Hinn bráðefnilegi Joshua Zirkzee kemur á lánssamningi frá FC Bayern með kaupmöguleika sem hljóðar uppá 15 milljónir evra.

Zirkzee er hávaxinn 19 ára kantmaður sem hefur gert 4 mörk í 16 leikjum með aðalliði Bayern.

Ítalski sóknarmaðurinn Graziano Pellè er þá á leiðinni á sex mánaða samningi. Hann kemur á frjálsri sölu.

Pellè, sem verður 36 ára í sumar, hefur raðað inn mörkunum með Shandong Luneng í kínverska boltanum undanfarin ár og lék áður fyrir Southampton, Feyenoord og AZ Alkmaar. Pellè var leikmaður Parma frá 2011 til 2013 en skoraði aðeins tvisvar í fjórtán leikjum.

Pellè skoraði 9 mörk í 20 A-landsleikjum með Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.