Fotbolti.net
01.02.21 - 17:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Sami Khedira til Hertha Berlín (Staðfest)

Khedira í leik með Juventus.

Khedira í leik með Juventus.

Canon

Mynd: Getty Images

Hertha Berlín hefur krækt í miðjumanninn Sami Khedira á frjálsri sölu frá Ítalíumeisturum Juventus.
Khedira er fyrrum landsliðsmaður Þýskalands en hann er 33 ára gamall í dag. Hann hefur ekkert fengið að spila með Juventus á tímabilinu og er núna kominn aftur heim til Þýskalands.

Khedira spilaði síðast í Þýskalandi 2010 þegar hann var á mála hjá Stuttgart. Þaðan fór hann til Real Madrid og síðan til Juventus.

Khedira, sem varð heimsmeistari með Þýskalandi 2014, hefur talað um áhuga sinn á ensku úrvalsdeildinni undanfarnar vikur og hefur hann verið orðaður við Everton. Það varð hins vegar ekkert úr því.

Hertha Berlín er í 15. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.