01.02.21 - 09:27
Ívan Guðjón Baldursson
Sanabria til Torino (Staðfest) - Leysir hann vandamál liðsins?

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Torino er búið að staðfesta kaupin á Antonio Sanabria, 24 ára sóknarmanni frá Paragvæ.
Torino hefur gengið herfilega á fyrri hluta tímabils í Serie A deildinni og er óvænt í fallbaráttu, með 15 stig eftir 20 umferðir.
Liðið er búið að skora 29 mörk á deildartímabilinu og gerði Andrea Belotti tíu þeirra. Hann þarf aðstoð í sóknarleiknum og vonar Davide Nicola, nýr þjálfari Torino, að Sanabria geti verið lausnin.
Torino borgar 10 milljónir evra fyrir Sanabria sem gerði góða hluti að láni hjá Genoa í fyrra. Hann skoraði 9 mörk í 39 leikjum hjá Genoa og reyndist gríðarlega mikilvægur.
Hann hefur ekki fengið sérlega mikinn spiltíma hjá Betis en í heildina hefur hann gert 23 mörk í 84 leikjum á fjórum árum.
Sanabria hefur spilað 17 landsleiki fyrir Paragvæ og hefur áður spilað fyrir Barcelona B, Sassuolo, Roma og Sporting Gijon.