Fotbolti.net
01.02.21 - 22:12
Ívan Guðjón Baldursson

Shkodran Mustafi til Schalke (Staðfest)

Shkodran Mustafi til Schalke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal er búið að staðfesta brottför þýska heimsmeistarans Shkodran Mustafi eftir fjögurra og hálfs árs dvöl hjá félaginu.
Mustafi hefur ekki átt sérlega góðu gengi að fagna á tíma sínum hjá Arsenal en á þó 151 leik að baki fyrir félagið.

Arsenal keypti miðvörðinn fyrir um 35 milljónir punda á sínum tíma en nú yfirgefur hann félagið frítt eftir að hafa komist að samkomulagi við Arsenal.

Mustafi fer yfir til Schalke þar sem hann mun hjálpa liðinu í fallbaráttu þýsku deildarinnar. Hann hefur aldrei spilað í þýsku deildinni áður og verður áhugavert að sjá hvernig honum tekst að fóta sig þar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.