01.02.21 - 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
Todibo kominn til Nice (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski miðvörðurinn Jean-Clair Todibo er genginn í raðir Nice í Frakklandi að láni út tímabilið.
Todibo er 21 árs gamall og vakti athygli á sér þegar hann gerði góða hluti með Toulouse í franska boltanum og var fenginn til Barcelona fyrir tveimur árum.
Hann hefur aðeins spilað fimm leiki fyrir Barca og tókst ekki að gera góða hluti þegar hann var lánaður fyrst til Schalke og síðan til Benfica.
Barca hefur verið að reyna að losa sig við varnarmanninn og núna snýr hann aftur í frönsku deildina.
Nice getur keypt Todibo fyrir 9,5 milljónir evra en samningur hans við Barcelona rennur ekki út fyrr en sumarið 2023.