Fotbolti.net
01.02.21 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Torino fær Mandragora frá Juventus (Staðfest)

Torino fær Mandragora frá Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Rolando Mandragora er búinn að skrifa undir lánssamning við Torino sem gildir næstu 18 mánuðina.
Torino er óvænt í fallbaráttu eftir skelfilegan fyrri hluta tímabils og kemur Mandragora að láni frá nágrönnunum og Ítalíumeisturunum í Juventus.

Mandragora er 23 ára gamall og þótti gífurlega mikið efni á sínum tíma þar sem hann var lykilmaður í yngri landsliðum Ítalíu. Hann hefur þó ekki enn tekið stökkið stóra og á aðeins einn A-landsleik að baki fyrir Ítalíu.

Mandragora hefur spilað yfir 100 leiki í Serie A fyrir Udinese, Genoa, Juventus og Crotone.

Mandragora er varnarsinnaður miðjumaður og gæti reynst afar mikilvægur í fallbaráttunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.