01.02.21 - 16:31
Ívan Guðjón Baldursson
Troy Parrott til Ipswich út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn ungi Troy Parrott mun leika að láni hjá Ipswich út tímabilið eftir að hafa varið fyrri helmingnum hjá Millwall.
Parrott, sem var í byrjunarliðsbaráttu við Jón Daða Böðvarsson, spilaði ellefu leiki í Championship deildinni og þrjá í bikar með Millwall án þess að skora mark.
Ipswich leikur í ensku C-deildinni og því er þetta skref niður fyrir Parrott sem þótti ekki nægilega góður fyrir næstefstu deild.
Ipswich er í umspilsbaráttu með 36 stig eftir 23 umferðir.
Parrott er 18 ára gamall og hefur spilað fjóra keppnisleiki fyrir aðallið Tottenham.