01.02.21 - 13:41
Elvar Geir Magnússon
Ungstirnið Ali Akman til Frankfurt (Staðfest)

Ungstirnið Ali Akman.

Mynd: Getty Images

Ungstirnið Ali Akman.

Mynd: Getty Images
Þýska félagið Eintracht Frankfurt hefur samið við Ali Akman en samningurinn tekur gildi í sumar og er til 2025.
Þessi 18 ára leikmaður hefur meðal annars verið orðaður við Chelsea og Red Bull Salzburg.
Akman er spennandi tyrkneskur sóknarmaður sem skorað hefur níu mörk í sextán leikjum fyrir Bursaspor í heimalandinu á þessu tímabili.
<i>„Við höfum tryggt okkur einn hæfileikaríkasta leikmann Tyrklands. Hann er leikmaður sem mun vonandi þróast, þroskast og bæta sig hjá okkur á næstu árum,"</i> segir Fredi Bobic, stjórnarmaður hjá Frankfurt.
Fjallað var um Akman í hlaðvarpsþættinum Ungstirnin hér á Fótbolta.net í nýjasta þættinum. Þáttinn má nálgast hér að neðan.

The Eagles have signed teenage striker Ali Akman! 👋
— Eintracht Frankfurt (@eintracht_eng) February 1, 2021
The 18-year-old will join the club in the summer from @BursasporSk after signing a contract valid from 1 July 2021 until 30 June 2025. ✍️#SGE pic.twitter.com/04dIkp5aJV