Fotbolti.net
01.02.21 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson

Yedlin til Galatasaray - Sýktur Fernandes kom með sjúkraflugi (Staðfest)

Yedlin til Galatasaray - Sýktur Fernandes kom með sjúkraflugi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Galatasaray er búið að staðfesta komu bandaríska bakvarðarins DeAndre Yedlin á frjálsri sölu frá Newcastle.
Yedlin er 27 ára gamall og spilaði 125 leiki á fjórum árum hjá Newcastle.

Portúgalski miðjumaðurinn Gedson Fernandes, sem varði fyrri hluta tímabilsins að láni hjá Tottenham, er einnig á leið til félagsins. Hann kemur að láni frá Benfica.

Fernandes er sýktur af Covid-19 en er samt á leið til Tyrklands með sjúkraflugi samkvæmt frétt Sky Sports. Þar mun hann skrifa undir samning til að geta verið gjaldgengur með liðinu út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.