Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   sun 01. febrúar 2026 15:08
Ívan Guðjón Baldursson
Atlético stelur Lookman undan nefinu á Fenerbahce
Mynd: EPA
Spænska stórveldið Atlético Madrid er búið að jafna kauptilboð sem Fenerbahce gerði í Ademola Lookman, sóknarleikmann Atalanta og nígeríska landsliðsins.

Leikmaðurinn er spenntur fyrir að skipta til Atlético og er fréttamaðurinn vinsæli Fabrizio Romano búinn að setja „here we go!" stimpilinn á skiptin.

Atlético borgar 40 milljónir evra fyrir Lookman, sem hefur komið að 82 mörkum í 137 leikjum með Atalanta.

Fenerbahce var tilbúið til að bjóða Lookman hærri launapakka en tókst ekki að semja við Atalanta um greiðsludreifingu, auk þess sem félagið átti eftir að tryggja staðfesta bankaábyrgð fyrir upphæð kaupverðsins.

Lookman verður kynntur til leiks hjá Atlético í dag eða á morgun í ljósi þess að félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld.

Spænska stórveldið hefur lengi haft áhuga á Lookman og ákvað að láta til skarar skríða þar sem afar góð samskipti ríkja á milli félagsliðanna.

Atalanta keypti Giacomo Raspadori frá Atlético á dögunum en á síðustu árum hefur Atlético krækt í Juan Musso og Matteo Ruggeri úr röðum Atalanta.

   31.01.2026 07:30
Fenerbahce býður 40 milljónir fyrir Lookman


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner