Ensku stórveldin Chelsea og Liverpool eru að berjast um Jérémy Jacquet, ungan varnarmann Rennes í Frakklandi.
Liðin eru í leit að miðverði sem getur rakið boltann úr vörninni til að hjálpa í sóknaruppbyggingu og hefur Rennes sett rúmlega 60 milljón evra verðmiða á leikmanninn.
Rennes hefur útilokað að selja Jacquet í janúarglugganum og því eru félögin að berjast um að festa kaup á honum næsta sumar, en Jacquet er 20 ára gamall og með 31 leik að baki fyrir yngri landslið Frakklands.
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá því að fleiri félög eru komin í kapphlaupið eftir að Rennes útilokaði sölu á Jacquet í janúar. Þar má helst nefna Þýskalandsmeistara FC Bayern og spænska stórveldið Real Madrid.
Fabrizio Romano segir einnig að viðræður Liverpool og Chelsea við Rennes séu komnar langt á leið eftir fundi síðustu vikna.
30.01.2026 20:40
Jacquet vill fara til Chelsea fyrir gluggalok
Athugasemdir





