Curtis Jones miðjumaður Liverpool hefur verið eftirsóttur í janúarglugganum en Englandsmeistararnir vilja ekki hleypa honum burt á lánssamningi.
Tottenham spurðist fyrir um Jones í byrjun janúar og hefur Inter verið að reyna við hann undanfarna daga, en bæði félögin vilja fá hann á lánssamningi með kaupmöguleika.
Jones er aðeins með eitt og hálft ár eftir af samningi við Liverpool og hefur verið að spila reglulega undir stjórn Arne Slot á tímabilinu.
Liverpool væri eingöngu tilbúið að skoða að lána leikmanninn út ef hann myndi skrifa undir framlengingu á núverandi samningi sínum fyrst.
30.01.2026 21:09
Inter reynir að fá Curtis Jones til að fylla í skarðið
Athugasemdir




