Fotbolti.net
01.02.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England í dag - Þriðji sigurinn í röð hjá Man Utd?

Man Utd getur komið sér á alvöru skrið með sigri í dag

Man Utd getur komið sér á alvöru skrið með sigri í dag

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick fer frábærlega af stað með Manchester United en hann og lærisveinar hans geta unnið þriðja deildarleikinn í röð þegar liðið tekur á móti Fulham á Old Trafford í dag.
Man Utd hefur unnið tvo erfiðustu leiki sína á tímabilinu í röð, gegn Manchester City og Arsenal.

Þeir vilja halda áfram góðu gengi er liðið mætir Fulham klukkan 14:00. Stuðningsmaðurinn Frank Ilett er byrjaður að láta sig dreyma um að geta klippt á sér hárið, en hann hætti að klippa það í október árið 2024 og sagðist ekki ætla að gera það fyrr en United vinnur fimm leiki í röð. Sjáum til hvort hann fái ósk sína uppfyllta.

Aston Villa tekur á móti Brentford á sama tíma og þá spilar Nottingham Forest við Crystal Palace á City Ground.

Klukkan 16:30 mætast Tottenham og Manchester City í Lundúnum, en Man City þarf sigur til að halda í við Arsenal sem vann Leeds United á Elland Road í gær. Tottenham er í 14. sæti með 28 stig.

Leikir dagsins:
14:00 Man Utd - Fulham
14:00 Aston Villa - Brentford
14:00 Nott. Forest - Crystal Palace
16:30 Tottenham - Man City

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.