Pep Lijnders og Jurgen Klopp unnu lengi saman hjá Liverpool eða frá 2015-2024 fyrir utan nokkra mánuði sem Lijnders var stjóri NEC Nijmegen.
Mikill rígur milli Liverpool og Man City hefur myndast undanfarin ár en Lijnders tók við sem aðstoðarþjálfari Pep Guardiola í sumar eftir misheppnaða dvöl sem stjóri RB Salzburg.
Mikill rígur milli Liverpool og Man City hefur myndast undanfarin ár en Lijnders tók við sem aðstoðarþjálfari Pep Guardiola í sumar eftir misheppnaða dvöl sem stjóri RB Salzburg.
Lijnders ræddi við Klopp áður en hann tók við starfinu.
„Jurgen var skýr þegar ég talaði við hann um þetta: 'Ef þú tekur ekki starfið geri ég það,'" sagði Lijnders og hló.
Lijnders segir að það hafi ekki verið erfið ákvörðun að aðstoða Guardiola.
„Viltu fá pólitískt svar? Nei, auðvitað ekki. Tilfinningin sem ég fékk þegar Pep Guardiola hringdi og sagði mér hvað hann vildi gera með liðið og traustið gerði ákvörðunina mun auðveldari," sagði Lijnders.
Athugasemdir



