Fotbolti.net
01.02.26 - 12:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Liverpool nær samkomulagi við Geertruida

Liverpool nær samkomulagi við Geertruida
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liverpool er í viðræðum við RB Leipzig og Sunderland um kaup á hægri bakverðinum Lutsharel Geertruida.
Liverpool í viðræðum um fyrrum lærisvein Slot
TENGT EFNI

Liverpool í viðræðum um fyrrum lærisvein Slot

Fabrizio Romano og Florian Plettenberg, hjá Sky í Þýskalandi, greina frá því að Liverpool sé þegar búið að ná samkomulagi við Geertruida.

Hann er 25 ára gamall hægri bakvörður sem getur einnig spilað sem miðvörður. Liverpool er í miklum meiðslavandræðum í vörninni en Jeremie Frimpong var síðastur til að meiðast þegar hann þurfti að fara af velli snemma leiks gegn Qarabag í Meistaradeildinni á dögunum.

Geertruida er á láni hjá Sunderland frá Leipzig og Sunderland ætlar að fá mann í staðin fyrir hann áður en félagið samþykkir að leyfa honum að fara.

Hann er uppalinn hjá Feyenoord en hann spilaði þar undir stjórn Arne Slot.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.