Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
Powerade
Mynd: Rennes
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sunnudagsslúðrið er komið í hús. Jean-Philippe Mateta, Joe Willock, Marcus Rashford, Jhon Duran, Jeremy Jacquet og fleiri koma við sögu.

Jean-Philippe Mateta hefur samþykkt samningstilboð frá AC Milan sem gildir út árið 2030 en Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, er ekki tilbúinn að leyfa hinum 28 ára gamla franska framherja að fara fyrr en hann hefur fundið arftaka. (Times)

Mateta bíður eftir því að fá leyfi til að fljúga til Milan í læknisskoðun en Crystal Palace tekur lokaákvörðun um allt. (Kaveh Solhekol)

Newcastle hefur hafnað 20 milljón punda tilboði Fulham í Joe Willock. Newcastle er ekki tilbúið að leyfa honum að fara fyrr en félagið hefur fundið arftaka. (Talksport)

Ef Michael Carrick verður áfram stjóri Man Utd eftir tímabilið vill hann fá Marcus Rashford, 28, sem er á láni hjá Barcelona, aftur til félagsins. (Telegraph)

Sunderland og Everton hafa áhuga á Tyrique George, 19, framerja Chelsea. Félög á Spáni, Frakklandi og Ítalíu fylgjast einnig með honum. (Sky Sports)

Sunderland hefur boðið Napoli að kaupa franska framherjan Wilson Isidor, 25. (Calciomercato)

Tottenham og Leeds eru meðal félaga í úrvalsdeildinni sem fá tækifæri til að semja við kólumbíska framherjann Jhon Duran, 22, sem er á láni hjá Fenerbahce frá Al-Nassr. (Teamtalk)

Liverpool og Chelsea eru í viðræðum við Rennes um kaup á tvítuga franska varnarmanninum Jeremy Jacquet en hann vill bara fara í sumar. (Fabrizio Romano)

Chelsea íhugar að kalla senegalska varnarmanninn Mamadou Sarr, 20, til baka úr láni frá systrafélaginu sínu Strasbourg. (Sky Sports)

Auxerre vill fá Fílabeinsstrendinginn David Datro Fofana, 23, framherja Chelsea. (L'Equipe)
Athugasemdir
banner
banner
banner