Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, er á leið í læknisskoðun hjá AC Milan en ítalska félagið kaupir hann fyrir um 30 milljónir evra.
The Athletic greinir frá þessu en Palace samþykkti tilboðið eftir að Wolves samþykkti 48 milljón punda tilboð Palace í Jörgen Strand Larsen.
Mateta er ekki með Palace sem er að spila gegn Nottingham Forest þessa stundina en Oliver Glasner, stjóri Palace, sagði fyrir helgi að hann væri ekki með hugann við leikinn.
Mateta er 28 ára gamall franskur framherji en hann gekk til liðs við Palace frá Mainz árið 2020 og hefur skorað 56 mörk í 186 leikjum.
Athugasemdir




