Víkingur er að ganga frá kaupum á Ármanni Inga Finnbogasyni frá ÍA. Frá þessu var greint í Kjaftæðinu hér á Fótbolti.net í kvöld.
Ármann er örvfættur hægri kantmaður sem fæddur er árið 2004 og var á láni hjá Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Hann átti gott tímabil, lék sérstaklega vel fyrri hluta tímabilsins þegar hann kom að sex mörkum í fyrstu átta umferðunum.

Hann skoraði sex mörk síðasta sumar, fimm í deild og eitt í bikar og samkvæmt var hann með þrjár stoðsendingar. Hann var í vetur orðaður við Njarðvík og þá var slúðrað um að verðmiðinn á honum væri þrjár milljónir króna.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net greiðir Víkingur um fjórar milljónir fyrir Ármann og getur sú upphæð hækkað út frá árangurstengdum greiðslum. Samkvæmt öðrum heimildum sjá Víkingar hann fyrir sér sem framtíðarleikmann og ætla að lána hann til nýliða Þórs í Bestu deildinni.
Ármann Ingi er uppalinn hjá ÍA og í Kjaftæðinu segir að hann hafi ekki viljað framlengja samning sinn við félagið. Hann kom við sögu í 14 leikjum í Lengjudeildinni 2023 og átta leikjum með ÍA í Bestu deildinni 2024.
Athugasemdir