Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   mán 01. mars 2021 19:58
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Elías Már spilaði í stórsigri
Hollenska B-deildarliðið Excelsior vann unglinga- og varalið Ajax, 5-1, er liðin áttust við í deildinni í kvöld.

Elías Már Ómarsson var í byrjunarliði Excelsior en var skipt af velli á 77. mínútu.

Hann var afar öflugur í sóknarleiknum og kom sér í tvö góð færi en brást bogalistin.

Elías hefur ekki tekist að skora í síðustu fimm deildarleikjum en þó verið virkur í sóknarleiknum.

Hann er með 18 mörk í 25 deildarleikjum til þessa en Excelsior er í 10. sæti með 33 stig.
Slapp
banner
banner