Fotbolti.net
04.07.26 - 15:39
Brynjar Ingi Erluson

Trossard kveður Arsenal

Trossard kveður Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Tyrkneska félagið Besiktas hefur náð samkomulagi við Arsenal um kaup á belgíska landsliðsmanninum Leandro Trossard. Athletic greinir frá.
Félögin hafa átt í viðræðum síðustu vikur og það var orðið nokkuð ljóst að Trossard myndi yfirgefa Arsenal.

Hann hefur átt stóran þátt í uppgangi Arsenal á síðustu árum og skorað mikilvæg mörk, en nú virðist komið að kveðjustund. Alls kom Trossard að 70 mörkum í 174 leikjum með liðinu, þar af 19 mörkum á síðustu leiktíð þegar Arsenal varð Englandsmeistari.

Athletic segir Besiktas hafa náð samkomulagi við Arsenal um kaup á Trossard. Tyrkneska félagið greiðir alls 17 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Kaupin eru þó ekki alveg frágengin, því enn á eftir að ganga frá launamálum Trossard áður en hann skrifar undir samning við tyrkneska félagið.

Trossard er þessa stundina með belgíska landsliðinu á heimsmeistaramótinu, en Belgía undirbýr sig fyrir leik gegn Bandaríkjunum í 16-liða úrslitum aðfaranótt þriðjudags.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.