HM: Marokkó sló gestgjafana úr leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kanada 0 - 3 Marokkó
0-1 Azzedine Ounahi ('50 )
0-2 Azzedine Ounahi ('82 )
0-3 Soufiane Rahimi ('90 )
0-1 Azzedine Ounahi ('50 )
0-2 Azzedine Ounahi ('82 )
0-3 Soufiane Rahimi ('90 )
Kanada, einn af gestgjöfunum á HM, er úr leik eftir tap gegn Marokkó í 16-liða úrslitum í kvöld.
Kanada var með yfirhöndina í hálfleik en tókst ekki að nýta sér yfirburðina. Jonathan David fékk tvö góð tækifæri en Yassine Bounou varði frábærlega frá honum.
Marokkó varð fyrir áfalli þegar Ismael Saibari þurfti að fara af velli snemma í fyrri hálfleik vegna meiðsla aftan í læri. Hann hefur skorað þrjú mörk á mótinu.
Marokkó kom mun sterkari til leiks í seinni hálfleik og Azzedine Ounahi kom liðinu yfir þegar hann skoraði með skoti fyrir utan teiginn eftir vel útfærða aukaspyrnu frá Achraf Hakimi á kantinum.
Kanada fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. David skaut en boltinn fór yfir markið.
Marokkó bætti öðru markinu við stuttu síðar. Brahim Diaz komst upp í skyndisókn og lagði boltann á Ounahi sem skoraði sitt annað mark og annað mark Marokkó.
Ounahi var síðan nálægt því að leggja upp þriðja markið en Soufiane Rahimi átti skalla í slána. Rahimi tókst hins vegar að innsigla sigur Marokkó þegar hann batt endahnútinn á skyndísókn í blálokin.
Marokkó er fyrsta liðið sem tryggir sér sæti í átta liða úrslitum. Liðið mætir annað hvort Paragvæ eða Frakklandi þar.