Fotbolti.net
01.03.26 - 17:54
Brynjar Ingi Erluson

Carrick: Stórt skref fyrir okkur

Carrick: Stórt skref fyrir okkur
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, segir liðið hafa tekið stórt skref í 2-1 endurkomusigrinum á Crystal Palace á Old Trafford í dag.
United-menn lentu marki undir í fyrri hálfleik en komu til baka í þeim síðari með vítaspyrnumarki Bruno Fernandes og sigurmarki slóvenska framherjans Benjamin Sesko.

„Ég er ótrúlega ánægður. Þetta var ákveðið próf fyrir okkur að lenda marki undir í hálfleik. Það er nýtt fyrir okkur. Við byrjuðum leikinn ekkert frábærlega og verð ég að hrósa Palace. Við náðum að vinna okkur inn í leikinn er leið á hálfleikinn og svo stigum við upp í seinni.“

„Það var mjög stórt að koma til baka eftir að hafa lent undir á heimavelli svona snemma gegn liði sem er erfitt að brjóta á bak aftur. Stórt skref hjá okkur og var ég ánægður með hvernig strákarnir nálguðust og brugðust við þessu,“
sagði Carrick.

Sesko hefur verið sjóðandi heitur með United en hann var að gera áttunda deildarmark sitt fyrir félagið.

„Ben er hér til að skora mörk og hann hefur gert nóg af því upp á síðkastið. Hann á eftir að reynast Man Utd mjög mikilvægur og er þegar orðinn það. Hann á eftir verða enn mikilvægari eftir því sem hann þroskast og bætir sig,“ sagði Carrick.

Man Utd er í 3. sæti deildarinnar með 51 stig og gerir sér vonir um að komast aftur í Meistaradeildina á næstu leiktíð.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1817
4Chelsea8+213
5Liverpool8+113
6Brentford8+511
7Aston Villa8-311
8Leeds7+310
9Hull City8+110
10Everton8-110
11Ipswich Town8-410
12Tottenham8-29
13Newcastle8-49
14Man Utd808
15Fulham8-28
16Crystal Palace8-88
17Bournemouth8-47
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.