Arsenal 2 - 1 Chelsea
1-0 William Saliba ('21 )
1-1 Piero Hincapie ('45 , sjálfsmark)
2-1 Jurrien Timber ('66 )
Rautt spjald: Pedro Neto, Chelsea ('70)
1-0 William Saliba ('21 )
1-1 Piero Hincapie ('45 , sjálfsmark)
2-1 Jurrien Timber ('66 )
Rautt spjald: Pedro Neto, Chelsea ('70)
Arsenal er aftur komið með fimm stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa lagt nágranna sína í Chelsea, 2-1, á Emirates-leikvanginum í dag. Öll mörkin komu eftir hornspyrnu.
William Saliba, miðvörður Arsenal, braut ísinn með marki eftir hornspyrnu. Boltanum var spyrnt á fjærstöngina þar sem Gabriel reis eins og fuglinn Fönix, stangaði boltann fyrir markið á Saliba sem skoraði.
Robert Sanchez, markvörður Chelsea, var í alls konar vandræðum í fyrri hálfleiknum og mátti oft litlu muna að það færi verr fyrir gestina, en Chelsea veitti Arsenal harða keppni.
Á lokamínútum fyrri hálfleiks jöfnuðu Chelsea-menn. Hornspyrna kom inn á teiginn sem David Raya þurfti að hafa sig allan í að verja, en hann kom engum vörnum við nokkrum sekúndum síðar eftir aðra hornspyrnu.
Boltanum var spyrnt á nærstöngina og var það Piero Hincapie sem stýrði boltanum í eigið net. Chelsea-liðið lifnaði verulega við eftir þetta og átti fjölmörg færi í byrjun síðari hálfleiks en nýtti ekki.
Það var síðan á 66. mínútu sem Jurrien Timber skoraði sigurmarkið og að sjálfsögðu kom það eftir hornspyrnu Declan Rice. Nóg af hornspyrnumörkum þessa helgina.
Fjórum mínútum síðar var Portúgalinn Pedro Neto rekinn af velli í liði Chelsea er hann fékk sitt annað gula spjald fyrir klaufalegt brot og Chelsea manni færri síðasta hluta leiksins.
Chelsea ógnaði á síðustu mínútum leiksins. Alejandro Garnacho átti fínustu tilraun sem Raya varði meistaralega og þá komu þeir boltanum í netið nokkrum mínútum síðar er Liam Delap setti boltann í netið af stuttu færi.
Það var hins vegar klár rangstaða í aðdragandanum þegar Moises Caicedo lyfti boltanum inn á teiginn, boltinn skallaður aftur á Joao Pedro sem reyndi hjólhesta spyrnu sem Raya varði upp í loftið áður en hann blakaði boltanum í Delap sem skoraði. Réttilega dæmt af enda Pedro vel fyrir innan.
Þetta var það síðasta markverða sem gerðist í þessum leik og fór Arsenal með sigur af hólmi. Arsenal er með 64 stig á toppnum, fimm stigum meira en Manchester City á meðan Chelsea er í 6. sæti með 45 stig.
Athugasemdir



