Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristian allt í öllu í sigri - Arnór Sig skoraði í bikarsigri
Mynd: EPA
Kristian Nökkvi Hlynsson var allt í öllu þegar Twente lagði Feyenoord af velli í hollensku deildinni.

Hann kom liðinu yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði með skoti fyrir utan teiginn. Skotið virtist ekki erfitt fyrir markvörð Feyenoord en honum tókst ekki að grípa boltann og missti hann í netið.

Kristian lagði síðan upp annað mark liðsins í seinni hálfleik og 2-0 sigur staðreynd.

Brynjólfur Willumsson spilaði 77 mínútur í grátlegu tapi Groningen gegn Volendam. Groningen jafnaði metin í 2-2 í uppbótatíma en Volendam skoraði sigurmarkið í blálokin.

Twente er í 5. sæti meeð 41 stig eftir 25 umferðir en Groningen er í 11. sæti með 31 stig.

Arnór Sigurðsson skoraði þriðja mark Malmö í 4-0 sigri á Karlstad í sænska bikarnum. Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn á undir lokin fyrir Arnór. Malmö er með sex stig eftir tvær umferðir.

Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á sem varamaður í markalausu jafntefli Gwangju gegn Jeju í fyrstu umferð Suður kóresku deildiinni. Oliver Stefánsson kom inn á sem varamaður í 2-1 tapi Tychy gegn Puszcza í næst efstu deild í Póllandi. Tychy er á botninum með 14 stig eftir 23 umferðir
Athugasemdir
banner