Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 14:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd marki undir og Shaw fór meiddur af velli
Mynd: EPA
Man Utd er í vandræðum á Old Trafford þar sem Crystal Palace er í heimsókn. Gestirnir komust yfir eftir aðeins fjögurra mínútna leik þegar Maxence Lacroix var einn og óvaldaður og skoraði með skalla eftir hornspyrnu.

Man Utd varð fyrir öðru áfalli þegar Luke Shaw þurfti að fara af velli eftir að Daniel Munoz traðkaði á fætinum hans.

Shaw á sér langa meiðslasögu en hann hefur verið heill hingað til á þessu tímabili og komið við sögu í öllum deildarleikjunum.

Man Utd átti erfitt uppdráttar í upphafi leiks en er að vinna sig betur inn í leikinn. Staðan er enn 1-0 þegar þetta er skrifað.

Sjáðu markið hér

Athugasemdir
banner
banner