Fotbolti.net
01.03.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Meiðsli herja á Real Madrid - Aðeins tveir miðverðir leikfærir

Alvaro Arbeloa er ekki með marga leikmenn til taks fyrir næstu leiki

Alvaro Arbeloa er ekki með marga leikmenn til taks fyrir næstu leiki

Canon

Mynd: EPA

Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, verður með alvöru hausverk næstur vikur en fjölmargir stórir póstar eru frá vegna meiðsla og eru aðeins tveir leikfærir miðverðir í hópnum.
Eder Militao, Dean Huijsen og Raul Asencio eru allir í endurhæfingu og óvist hvenær þeir snúa aftur á völlinn.

Arbeloa hefur þurft að fá nokkra unga leikmenn inn í hópinn, svona til vonar og vara. Joan Martínez og Victor Valdepenas hafa verið viðloðandi hópinn en þeir eru báðir meiddir. Varaliðið er með nokkra leikmenn sem Real Madrid hefur getað notað sem neyðarúrræði, en það er ekki hægt í þessu tilfelli.

Antonio Rüdiger og David Alaba eru því einu kostirnir, en Alaba er mikill meiðslapési sjálfur og aðeins spilað 343 mínútur allt tímabilið. Miðjumaðurinn Aurélien Tchouameni getur leyst af í miðverði, en það myndi búa til vesen á miðsvæðinu þar sem hann er vanur að spila.

Það eru ekki einu vandræði Arbeloa. Kylian Mbappe, Jude Bellingham og Dani Ceballos eru einnig frá næstu vikurnar.

Góðu fréttirnar fyrir Arbeloa eru þær að brasilíski sóknarmaðurinn Rodrygo er klár fyrir leikinn gegn Celta Vigo sem fer fram næsta föstudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.