Fotbolti.net
01.03.26 - 18:19
Brynjar Ingi Erluson

Þriðja hornspyrnumarkið á Emirates - Neto rekinn af velli

Þriðja hornspyrnumarkið á Emirates - Neto rekinn af velli
Canon

Mynd: EPA

Hollenski varnarmaðurinn Jurrien Timber kom Arsenal í 2-1 gegn nágrönnunum í Chelsea á Emirates-leikvanginum í kvöld og þá er búið að reka Pedro Neto af velli.
Sjáðu markið: Hincapie stýrði hornspyrnu í eigið net
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Hincapie stýrði hornspyrnu í eigið net

Öll mörkin í leiknum hafa komið eftir hornspyrnu. William Saliba skoraði eftir hornspyrnu á 21. mínútu og þá jafnaði Chelsea metin er Piero Hincapie setti boltann í eigið net eftir hornspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.

Arsenal komst aftur yfir á 66. mínútu er Timber setti boltann í netið eftir hornspyrnu Declan Rice. Þriðja hornspyrnumark dagsins á Emirates.

Fjórum mínútum síðar var Pedro Neto, leikmaður Chelsea, rekinn af velli með sitt annað gula spjald fyrir heimskulegt brot. Hann var hálf ringlaður og eins og hann hafi gleymt því að hann væri á gulu, en fyrra spjaldið fékk hann aðeins nokkrum mínútum áður.

Hér fyrir neðan má sjá mark Timber og rauða spjaldið á Neto.

Sjáðu markið hjá Timber

Sjáðu rauða spjaldið á Neto
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.