Fotbolti.net
01.03.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Yngsti leikmaðurinn til að skora þrennu á þessari öld

Lamine Yamal

Lamine Yamal

Canon

Mynd: EPA

Spænska undrabarnið Lamine Yamal skoraði sína fyrstu þrennu á ferlinum er Barcelona vann Villarreal, 4-1, í La Liga á Spáni í gær.
Yamal, sem er 18 ára gamall, hefur verið potturinn og pannan í sóknarleik Börsunga síðan hann var tekinn inn í aðalliðið fyrir þremur árum.

Hann kom að hundraðasta marki sínu með félagsliði og landsliði í leiknum gegn Villarreal og hélt sérstaklega upp á það með að skora í leiðinni fyrstu þrennu ferilsins.

Þrennan gerði hann um leið yngsta leikmanninn til að skora þrennu í La Liga á þessari öld.

Mexíkóinn Giovani dos Santos var 19 ára og sex daga gamall þegar hann gerði þrennu fyrir Barcelona gegn Real Murcia árið 2009 og þá var Spánverjinn Santi Mina 19 ára og 125 gamall er hann gerði fernu fyrir Celta Vigo í sigri á Rayo Vallecano.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.