Hansi Flick, þjálfari Spánarmeistara Barcelona, hefur samþykkt nýjan samning hjá félaginu en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Samningur Þjóðverjans rennur út eftir næsta tímabil en Romano segir að nú hafi samkomulagi verið náð um að hann framlengi samning sinn til 2028 með möguleika á einu ári til viðbótar.
Flick tók við Barcelona af Xavi sumarið 2024 og er á góðri leið með að gera liðið að Spánarmeisturum annað árið í röð.
Barcelona er með níu stiga forystu á Real Madrid í titilbaráttunni þegar fimm umferðir eru eftir.
Það var svo sem ekkert leyndarmál að hann yrði áfram hjá Barcelona eftir að Joan Laporta vann forsetakosningarnar. Laporta fékk hann til félagsins árið 2024 og er gríðarlega ánægður með hans störf.




