Afturelding 0 - 0 Völsungur
Lestu um leikinn
Lestu um leikinn
Afturelding fékk Völsung í heimsókn í Lengjudeildinni í dag. Afturelding var án stiga fyrir leikinn eftir stórt tap gegn ÍR en Völsungur með eitt stig eftir jafntefli gegn Leikni.
Það vakti athygli að reynsluboltarnir og fyrrum atvinnumennirnir Birkir Már Sævarsson, 41 árs gamall leikmaður Aftureldingar, og Steinþór Freyr Þorsteinsson, 40 ára gamall leikmaður Völsungs, voru í byrjunarliðunum.
„Sturluð staðreynd dagsins. Það eru tveir menn á fimmtudagsaldri í byrjunarliðunum. Birki Már Sævarsson þekkja allir en hinn er Steinþór Freyr Þorsteinsson 40 ára gamall í liði Völsungs," skrifaði Alexander Tonini í textalýsinguna.
Þetta var mjög bragðdaufur leikur en Afturelding var nálægt því að skora eftir hálftíma leik en Elmar Kári Enesson Cogic komst ekki í boltann á fjærstönginni.
Völsungur fékk úrvalsfæri til að komast yfir undir lok leiksins. Þeir voru í yfirtölu, þrír á móti tveimur, en Afturelding náði að bjarga í horn.
Nær komust liðin ekki og mjög bragðdauft jafntefli í Mosfellsbæ staðreynd. Völsungur er með tvö stig eftir tvær umferðir en Afurelding aðeins eitt.
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. ÍR | 1 | 1 | 0 | 0 | 7 - 4 | +3 | 3 |
| 2. HK | 1 | 1 | 0 | 0 | 4 - 1 | +3 | 3 |
| 3. Fylkir | 1 | 1 | 0 | 0 | 3 - 0 | +3 | 3 |
| 4. Þróttur R. | 1 | 1 | 0 | 0 | 2 - 0 | +2 | 3 |
| 5. Grindavík | 2 | 0 | 2 | 0 | 1 - 1 | 0 | 2 |
| 6. Völsungur | 2 | 0 | 2 | 0 | 1 - 1 | 0 | 2 |
| 7. Leiknir R. | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 8. Vestri | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 9. Njarðvík | 2 | 0 | 1 | 1 | 0 - 2 | -2 | 1 |
| 10. Afturelding | 2 | 0 | 1 | 1 | 4 - 7 | -3 | 1 |
| 11. Grótta | 1 | 0 | 0 | 1 | 1 - 4 | -3 | 0 |
| 12. Ægir | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 - 3 | -3 | 0 |




