Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
   fös 01. maí 2026 19:26
Alexander Tonini
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Lengjudeildin
Modoumatarr Mbye kom frá Stokkhólmi fyrir tímabilið í smábæinn Húsavík
Modoumatarr Mbye kom frá Stokkhólmi fyrir tímabilið í smábæinn Húsavík
Mynd: Völsungur
Við fyrstu sýn virðist sem Völsungur hafi fengið til sín hörkuleikmann að nafni Modoumatarr Mbye frá Svíþjóð. Í það sem verður að kallast leiðinlegum 0-0 leik á Malbiksstöðinni gegn Aftureldingu stóð hann upp úr fyrir vinnusemi, hlaupagetu og einvígjum maður á mann.

Hvernig lagðist annars þessi leikur í hann?

"Þetta var erfiður leikur en okkur fannst við eiga inni frá síðasta leik. Við fórum inn í þennan leik með allt annað hugarfar og eitt stig úr þessum leik er alls ekki slæmt. En við viljum samt halda áfram að bæta okkur."

Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  0 Völsungur

Samkvæmt öllum helstu spám Lengjudeildar er Völsungur það lið sem flestir halda að muni falla eftir tímabilið. Nú er Modoumatarr nýkominn til liðsins, er honum kunnugt um þessar spár?

"Já ég er búinn að heyra eitthvað af þessu, en eins og þjálfarinn segir þá spilum við leikina á vellinum en ekki á internetinu."

Vissi Modoumatarr að Afturelding spilaði í Bestu deild karla í fyrra og var að mæta mönnum með talsverða reynslu úr efstu hillu?

"Nei ég hafði ekki hugmynd um það. Við mættum með það hugarfar að þeir (Afturelding) væru meira með boltann. Við vissum að þegar leið á leikinn þá yrðu leikmenn Aftureldingar pirraðir og þá var planið að nýta skyndisóknar. Við stóðum okkur vel og hefðum vel geta skorað."

En hvernig er lífið á Húsavík?

"Það er mjög rólegt og gott, ég kann vel við það?

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner
banner
banner